Samsung Food
Log in
Use App
Log in
By Svala H. Sigurdardottir

Skinkuhorn – veisluútgáfa

Þessi 80 skinkuhorn eru ekki lengi að klárast skal ég segja ykkur en gott er að lauma strax hluta af þeim í frystinn og grípa svo með í nesti eða þegar gesti ber að garði.
Updated at: Sat, 06 Jul 2024 21:51:21 GMT

Nutrition balance score

Uh-oh! We're unable to calculate nutrition for this recipe because some ingredients aren't recognized.

Ingredients

0 servings

150 grbrætt smjör
750mlmjólk
1.5 pkþurrger
litlu pokarnir
1250 grhveiti
90 grsykur
2 tsk salt
2 tsksalt
3 pakkarSkinkumyrja
200 grskinka skorin
í litla bita
Rifinn ostur
inn í og ofan á
Egg til penslunar
Egg
til penslunar

Instructions

Step 1
Bræðið smjörið við miðlungshita
Step 2
Hellið mjólkinni út í og hitið þar til blandan er ylvolg.
Step 3
Hellið þá gerinu saman við og leyfið að standa í amk 5 mínútur þar til gerið fer örlítið að freyða.
Step 4
Setjið öll þurrefnin (hveiti, sykur,salt) í hrærivélarskálina á meðan og hellið mjólkurblöndunni svo varlega saman við og hnoðið með króknum (eða í höndunum).
Step 5
Stundum þarf að bæta örlítið meira af hveiti við en deigið má þó alveg vera örlítið blautkennt fyrir hefun.
Step 6
Smyrjið skál með matarolíu (ég notaði reyndar PAM matarolíusprey), mótið kúlu úr deiginu og komið fyrir í skálinni, snúið 1x til að maka olíunni allan hringinn og setjið því næst hreinan rakan klút yfir skálina og hefið í um 45 mínútur.
Step 7
Á meðan er gott að gera bökunarplötur tilbúnar, skera niður skinkuna og rífa ostinn.
Step 8
Skiptið deiginu í 10 hluta (svo hverjum í 8 einingar).
Step 9
Fletjið hvern hluta út og skiptið niður með pizzahníf. Raðið smurostinum, skinkunni og osti á hvern hluta og rúllið upp frá breiðari endanum.
Step 10
Munið að snúa upp á endana þegar á plötuna er komið til að koma í veg fyrir að góðgætið renni út á endunum.
Step 11
Penslið með pískuðu eggi og stráið smá osti yfir hvert horn.
Step 12
Bakið í 190°C heitum ofni í 12-15 mínútur eða þar til hornin verða gullinbrún.

Notes

0 liked
0 disliked
There are no notes yet. Be the first to share your experience!